|
Alþingi
Fór á Alþingi á þriðjudaginn. Við Guðrún settumst niður á kaffi París og gerðum okkur líklegar til að panta. Ég tók upp tölvuna, opnaði hana, fór á www.althingi.is, smellti á ,,bein útsending" og þar var hæstvirtur ráðherra, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, að gera sig til fyrir ræðu. Við stukkum af stað og rétt náðum byrjuninni. Þetta var áhrifamikil ræða og eftir hana kom hver þingmaðurinn á fætur öðrum og hældi Möggu og lýsti yfir stuðningi við þetta frumvarp (um réttindi heyrnarlausra til að tala táknmál og fá túlka o.s.frv.). Jóhanna Sigurðardóttir lýsti yfir hneykslan yfir því hvað litlum fjármunum væri veitt í túlkaþjónustu á meðan ríkissjóður flæddi í peningum. Svo kom Pétur Blöndal og fór eitthvað að röfla um tækni. Hann sagði að það væri til tækni sem breytti skrifuðum texta í tal... fyrir heyrnarlausa... ha?!?!? Ég bíð bara eftir ræðunni hans á Alþingisvefnum til að geta vitnað í hann. Æji, ég ætla alltaf að skrifa eitthvað gáfulegt hérna. Ég verð að bíða þangað til andinn kemur yfir mig.
skrifað af Runa Vala
kl: 17:44
|
|
|